Dagana 28. – 30. október fór unglingadeildin Vestri til Ísafjarðar í innilegu hjá unglingadeildinni Hafstjörnunni.
Lagt var af stað um miðjan dag á föstudeginum og var fenginn einn bíll frá Ísafirði til þess að taka á móti okkur. Vorum nefnilega 9 í heildina, 7 unglingar og 2 umsjónarmenn og því dugði bíll bjsv. Blakks ekki undir okkur öll og fór Smári því á sínum bíl áleiðis til Ísafjarðar en við hittum síðan bílinn sem kom á móti okkur uppi á Dynjandisheiði. Föstudagskvöldið fór svo bara í spjall og að koma sér fyrir í Guðmundarbúð, húsi björgunarfélags Ísafjarðar.
Laugardagurinn var tekinn snemma og var farið út um 9.30. Fyrir hádegi voru teknir tveir póstar (póstur er svona stöðvavinna) og eftir hádegi var einn póstur. Póstarnir þrír voru sig, þrautabraut og hópefli. Allt voru þetta skemmtilegir póstar og unglingarnir sem og umsjónarmenn náðu vel saman. Eftir póstavinnuna var síðan frjáls tími fram að kvöldmat. Unglingunum var skipt í 3 lið og fengu þau mismunandi heiti. Þemað voru lönd og hétu hóparnir Svíþjóð, Ítalía og Mexíkó. Eftir kvöldmatinn var síðan farið í sund á Suðureyri og mikið var nú gott að slaka á í pottinum eftir góðan dag. Þegar sundinu var lokið tók við smá skemmtidagskrá sem hver hópur setti saman og síðan horfðu þeir sem vildu á bíómynd.
Sunnudagurinn fór í það að pakka saman og koma sér heim. Það var ekki eins auðvelt að fara heim eins og að komast norður. Allt var nefnilega autt á föstudeginum en á sunnudeginum var búið að snjóa á heiðunum og það var frekar hvasst. Ísfirðingarnir fylgdu okkur heim og það dugði ekkert minna en Unimoc (risatrukkur) og aftan í honum var síðan einn vélsleði. Ferðin heim gekk ágætlega fyrir utan nokkra væna skafla á Hrafnseyrarheiði en við þurftum að moka okkur í gegnum einn skafl þar sem var ca. 100 m. langur. Hinum megin við skaflinn beið Smári okkar en fengum við Ísfirðingana til þess að fylgja okkur áleiðis upp Svínadalinn og upp á Dynjandisheiði.
Helgin var góð í alla staði og allir sáttir og ánægðir loksins þegar var komið heim.
Viljum við í unglingadeildinni Vestra þakka félögum okkar á Ísafirði enn og aftur fyrir helgina og þá sérstaklega fyrir fylgdina heim!



Fleiri myndir frá helginni má finna á facebook-síðu unglingadeildarinnar.
Arna Margrét,
umsjónarmaður unglingad. Vestra.
Fengum góða heimsókn í gær af félögum okkar úr Húnum og af Skagaströndinni.
Þeir gistu í nótt í Sigurðarbúð og eru nú á leiðinni á Landsæfinguna á Ísafirði þar sem við komum til með að hitta þá aftur í kvöld
Þegar félagsfundi Bjsv. Blakks var að ljúka, þriðjudagskvöldið 24. maí, gekk inn í salinn Sr. Leifur Ragnar Jónsson með gömlu fundargerðarbók Bjsv. Blakks sem hann fann í safnaðarheimilinu í gamla Landsbankanum.
Mikil leit hefur verið gerð að bókinni síðastliðin 10 ár eða svo og var hún svo talin glötuð þar sem öllum steinum hafði verið velt við í leitinni að henni. Segja má að sannkölluð himnasending hafi verið þarna á ferðinni þar sem þessi bók er stórt heimildarit um sögu sveitarinnar og var hennar sárt saknað við undirbúning 40 ára afmælis Björgunarsveitarinnar Blakks. Áform eru um að skanna inn allar fundargerðirnar í gömlu bókinni, nýju bókinni og birta þær allar á vefsíðu sveitarinnar: Blakkur.is.
Snjósleðarnir sem auglýstir voru til sölu í fréttinni hérna fyrir neðan eru seldir. Stjórn Blakks samþykkti á stjórnarfundi tilboð sem bárust í sleðana og fól formanni að ganga frá sölu á þeim.
Ákveðið hefur verið vegna endurnýjunar á tækjabúnaði bjsv. Blakks að selja báða snjósleðana okkar.
Um er að ræða eftirfarandi:
Yamaha Ventura triple 600 CC tvígengis árgerð 2000
Fastnr. SX-230. Rafstart og bakkgír. Nýtt belti var sett undir sleðann fyrir ca. 2 árum og mjög lítið búið að keyra hann eftir það þar sem varla hefur snjóað hér fyrir vestan síðan.
Sleðinn er í mjög góðu standi og ekinn 5521 km
Yamaha RS Viking 1000 CC fjórgengis árgerð 2006
Fastnr. OH 387. Rafstart og bakkgír.
Sleðinn er í mjög góðu standi og einungis ekinn 573 km… varla búið að tilkeyra gripinn.
Nánari upplýsingar um sleðana gefur Smári Gestsson í síma 865-1566.
Einnig er hægt að senda inn tilboð eða óska eftir upplýsingum á stjorn(hjá)blakkur.is


Búið er að auglýsa aðalfund Blakks laugardaginn 8. janúar kl. 19:00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf og verður fundurinn haldinn í Sigurðarbúð. Samkvæmt félagslögum á að vera búið að halda aðalfund í lok nóvember en sökum mikilla anna við önnur störf á vegum sveitarinnar náði stjórn ekki að halda aðalfund innan þeirra tímamarka.
Flugeldasölu er nýlokið og gekk hún vel. Sú nýbreytni átti sér stað að búnir voru til tveir lukkupottar og dregið úr á gamlárskvöld. Í verðlaun var Gunnlaugur skotterta og í öðrum pottinum var trítill, minnsti fjölskyldupakkinn sem er eingöngu með smádóti. Til stóð að draga úr pottunum tveim við brennuna en þar sem hún frestaðist fram á nýársdagskvöld var dregið úr pottinum og þau heppnu, Fanney Sif Gísladóttir og Kristján Rafn Gunnarsson afhent vinningarnir fyrir áramótin. Við brennuna á nýársdagsköld var svo skotið upp glæsilegri flugeldasýningu sem er sett saman af Jónasi Þrastarsyni og Siggeir Guðnasyni, flugeldameisturum Blakks.
Jæja gott fólk, síðan var búin að vera biluð svo lengi að ég setti upp nýja og gafst upp á hinni. Vonum að þessi verði farsælari en hin.